Það er komið út nýtt ævintýri........

Eins og í öðrum ævintýrum  þá eignaðist Björgólfur Guðmundsson prins.
Prinsinn átti að erfa ríkið. Það gerði litli prinsinn. Hann átti einn góðan dag litla eyju út í ballarhafi. Með manni og mús. Prinsinn varð glaður og kátur með hvað allir á eyjunni  voru vinnusamir og heiðarlegir. Prinsinn og faðir hans ákváðu þá að þetta vesalings vinnusama og heiðarlega fólk gæti lagt aðeins meira á sig. Þeir sáu fyrir að ef þeir næðu undir sig næstu 2-3 kynslóðum til vinnu fyrir sig, þá gætu þeir orðið kóngar í fleiri ríkjum og eyjum. Orðið enn ríkari. Þetta gerðu þeir með Yes, Yes, kórnum sem þeir voru búnir að koma sér upp og kaupa.
Úti er ævintýri.

Engin veit því miður hvernig þetta ótrúlega ævintýri endar.

Og ekki heldur hversu margir svelta og líða hörmungar vegna þessa ævintýris.

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Ertu nú ekki að hengja bakara fyrir smið? Hvað með Davíð Oddsson? Halldór Ásgrímsson? Hannes Smárason? Bjarna Ármannsson? Pálma í Fons? Jón Ásgeir Jóhannesson?

annaandulka (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:14

2 identicon

Sammála. Davíð Oddson er höfundur af þessu ævintýri. Hann fékk þessa feðga til að skrásetja alla heimsbyggðina fyrir sig. Davíð er eins og hann segir sjálfur endurfæddur Kristur. Kristur þurftir lærisveina. Davíð var með sína lærisveina. Bjöggana.

Ég byðst afsökunar á þessu.

Erna Margrét (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:42

3 Smámynd: Anna  Andulka

Nú er veslings Bjarni Ármannsson að flytja heim. Gekk ekki upp í Noregi. Er að endurbyggja allt húsið sitt segir DV í dag. Íbúi í nærliggjandi húsi skilur ekki í manninum að þora þetta á þessum tímum. En svona er siðleysið. Algjört.

Já og svo sá ég á bloggi Eiríks Jónssonar að Sigurður Einarsson fv. Kaupþingsbankastjóri hefði verið skellihlæjandi á götu í London. Sá hlær best sem síðast hlær.

Anna Andulka, 26.6.2009 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Erna Margrét

Höfundur

Erna Margrét Ottósdóttir
Erna Margrét Ottósdóttir

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband